Borgarstjórn: „Tillaga Sjálfstæðisflokks um að rekstur sorphirðu í borginni verði boðin út. Borgarstjórn samþykkir að kannað verði hvort hægt sé að ná hagkvæmni í rekstri sorphirðu í borginni með því að bjóða framkvæmd hennar út. Miðað skuli við að breytingin yrði gerð í áföngum, að byrjað væri í völdum hverfum, og reynslan metin áður en lengra yrði haldið. Skilyrða þyrfti að núverandi starfsfólk héldi störfum sínum og starfstengd réttindi þeirra fylgdu með. Með könnuninni mætti áætla sparnað og í framhaldinu kanna hvort draga mætti úr gjaldtöku í málaflokknum, og/eða draga úr umhverfisáhrifum sorphirðu í borginni.“
Meirihlutaflokkarnir og Sósíalistaflokkur sögðu nei. Sjálfstæðisflokkur og Miðflokkur já. Flokkur fólksins sat hjá. Tillagan var því felld.