Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, segir þá Ólaf Ísleifsson og Karl Gauti Hjaltason, sem reknir voru úr Flokki fólksins, hafi verið löngu komna yfir í Miðflokkinn, en þó ekki formlegum hætti. Þetta kom fram í máli Ingu Sæland formanni Flokks fólksins sem hringdi inn í símatímann á Útvarpi Sögu í morgun.
Inga sagði að þeir sem gagnrýni brottrekstur Ólafs og Karls Gauta viti ekki nema hálfa söguna; „…það var mikið búið að ganga á áður og það var mikið búið að reyna að halda þessu saman sem hefði verið besti kosturinn en þeir voru í raun bara löngu komnir yfir í Miðflokkinn, en eins og ég segi var mikið búið að vera í gangi og þingflokkurinn í rauninni orðinn óstarfhæfur vegna þess og því var þetta niðurstaðan, við erum ekkert að bera allt upp á torg sem gerist innan flokksins,“ sagði Inga. Hlusta má á símtalið við Ingu hér.
Inga segir ekki rétt að þingflokkurinn hafi verið óstarfhæfur fyrir Klaustursmálið, en hafi orðið það þegar málið varð opinbert.