Stundum opna þau sem hafa mikið vald, eða haft, gluggann. Draga frá. Það gerir Guðni Ágústsson í Moggagrein í dag. Sem reyndar á að vera einhverskonar sendibréf til Þorsteins Pálssonar. Þorsteinn og Guðni er fjarri sammála um Evrópusambandið. Guðni, sem er fyrrum ráðherra og formaður Framsóknar, þekkir til innanhúss þar sem valdafólk er og starfar. Hann segir:
„Það hefur aldrei verið brýnni þörf en nú að taka til umræðu hvernig EES hefur yfirtekið bæði löggjöf og vald hér sem aldrei var á dagskrá. Orkuauðlindir og landbúnaðarmál voru í upphafi utan við EES. Evrópusambandið hefur breyst eins og SÍS á löngum tíma. Völdin og stjórnræði spilla mannlegu eðli. Peningar og græðgi ESB tröllríða herbúðunum í Brussel. Íslenska þjóðin hefur aldrei kosið um þessa vegferð, hins vegar kaus hún Icesave af höndum sínum, ekki einu sinni heldur tvisvar.“
Það er og. Auðvitað vissum þetta með völdin, stjórnræðið og mannlegt eðli. Samt er að fá það undirstrikað af og til. Hafi Guðni þakkir fyrir. Hér fara lokaorð greinar Guðna í Mogganum í dag:
„Hvar er þjóðarviljinn? Við vitum að þingviljinn er í dái. Ég minni hið nýja þing á að það er Alþingi sem setur starfsreglurnar í okkar þjóðfélagi.“
-sme