Þau voru merk úrslitin í vali Vinstri grænna á framboðslistann í Norðausturkjördæmi. Tveimur af helstu forystukonum flokksins var hafnað, þingflokksformanninum og ritara flokksins. Fengu báðar bylmingshögg.
Báðar Ingibjörg Þórðardóttir, varaþingmaður og ritari flokksins, og Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir þingflokksformaður sóttust eftir auðu forystusæti í kjördæminu. Bjarkey settist fyrst á þing árið 2004 þá sem varaþingmaður.
Rafrænt forval VG í kjördæminu var dagana 13. til 15. febrúar. Þar Óli Halldórsson varaþingmaður hlutskarpastur, þá Bjarkey Olsen, þingflokksformaður VG og í þriðja sæti, er Jódís Skúladóttir. Kári Gautason varð fjórði og í fimmta sæti varð Jana Salóme Ingibjargar Jósepsdóttir.
„Þá eru niðurstöður komnar. Það er augljóslega meira framboð af mér en eftirspurn og félagar mínir í VG í NA hafna mér fullkomlega. Það breytir nú samt ekki því að ég mun standa við bakið á VG og þessum lista sem samanstendur af frábæru fólki,“ skrifar Ingibjörg á Facebook.
Bjarkey liggur undir feldi. Efast um hvort hún eigi að þiggja sætið sem hún var valin til að sitja í.
„Nú mun ég heyra í mínu baklandi og taka mér þann tíma sem ég þarf til þess að komast að niðurstöðu,“ hefur Bjarkey sagt.
Svo er það, er þetta fyrsta stóra breytingin í framboðum Vinstri grænna. Víst má telja að Katrín Jakobsdóttir og Svandís Svavarsdóttir séu öruggar um að leiða listana í Reykjavík. Aðrir sitjandi þingmenn eru í hættu um að missa þingsæti. Ekki síst Kolbeinn Óttarsson og Lilja Rafney Magnúsdóttir.