Vilhjálmur Birgisson skrifar.
„Þótt ég sé ekki með sömu pólitísku skoðanir og Katrín í sumum málum þá tel ég hana góðan kost fyrir íslensku þjóðina sem forseta Íslands.
Hef átt í töluverðum samskiptum við Katrínu á liðnum árum í tengslum við kjarasamninga og öll þau samskipti hafa verið byggð á trausti og trúnaði.
Það sem ég tel best í hennar fari er að hún er alþýðleg, laus við hroka, yfirlæti og snobb sem því miður einkennir sumt fólk sem hefur mikil völd.
Einnig tel ég Katrínu hafa yfirgripsmikla þekkingu á stjórnskipan Íslands og hefur mikla reynslu á erlendum vettvangi sem forsætisráðherra.
Ég mun styðja Katrín Jakobsdóttir í komandi forsetakosningum.“