Vigdís Hauksdóttir, borgarfulltrúi Miðflokksins, leggur til á fundi borgarráðs í dag nokkrar tillögur um niðurskurð hjá borginni. Hún leggur fram sex tillögur:
- Farið verði tafarlaust í að skilgreina lögbundið hlutverk Reykjavíkur og fjármagni forgangsraðað í grunnþjónustu.
- Farið verði tafarlaust í kerfisbundinn niðurskurð á skrifstofu borgarstjóra og í annarri stjórnsýslu borgarinnar.
- Tekið verði tafarlaust upp ráðningarstopp í stjórnsýslu Reykjavíkur en lögbundinni þjónustu og grunnstoðum verði hlíft.
- Dregið verði úr utanferðum kjörinna fulltrúa og embættismanna borgarinnar og skilagrein gerð fyrir hvers vegna ferð var farin.
- Farið verði í bestun í öllum innkaupum borgarinnar og að m.k. 10% hagræðingu verði náð.
- Allar þessar aðgerðir komi til með að liggja til grundvallar fjárhagsáætlun Reykjavíkur fyrir árið 2019.