Fyrirhugaðar framkvæmdir mega með réttu teljast fela í sér röskun á þingfriði.
Fjórir Alþingismenn hafa lagt fram tillögu á Alþingi um að fjármálaráðherra verði falið að koma Landssímahúsinu í ríkiseign og takist samningar um kaup hússins ekki, verði það tekið eignarnámi.
Þingmennirnir eru: Ólafur Ísleifsson, Ásmundur Friðriksson, Karl Gauti Hjaltason og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson.
Í greinargerð með tillögunni vitnar þeir meðal annars til stjórnarskrárinnar þar sem segir að Alþingi sé friðheilagt og má enginn raska friði né frelsi þess.
„Fyrirhugaðar framkvæmdir og starfsemi á Landssímareitnum við Austurvöll, þar sem rísa eiga stórt og mikið hótel og veitingastaðir með tilheyrandi umferð ferðamanna og hópferðabíla, mega með réttu teljast fela í sér röskun á þingfriði í andstöðu við umrætt ákvæði. Flutningsmenn þessarar tillögu telja slíkt ekki mega viðgangast og leggja í því skyni til að fjármála- og efnahagsráðherra verði falið, helst með samningum en með eignarnámi ef nauðsyn krefur, að tryggja ríkinu eignarhald á Landssímahúsinu eða eftir atvikum þeim hluta byggingarlóðar sem tilheyrir Víkurkirkjugarði. Áður hefur verið bent á að friðhelgi Alþingis sé virt að vettugi með áformunum og kærði forsætisnefnd Alþingis m.a. deiliskipulag svæðisins til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála á sínum tíma,“ segir í greinargerðinni.
Þingsályktunartillöguna má lesa hér.