- Advertisement -

Vilja fá skýr svör um braggann dýra

Fulltrúar Sjálfstæðisflokks, Miðflokks og Flokks fólksins, vilja fá að vita meira um hvers vegna bragginn í Nauthólsvík kostaði eins mikið og raun ber vitni.

Þau hafa sett fram fyrirspurn um hvað gerðist í raun og veru:

„Óskað er eftir sundurliðuðu og rekjanlegu yfirliti yfir framkvæmdir við braggann í Nauthólsvík frá því þær hófust. Lögð var fram í borgarráði þann 6. september 2018 fundargerð innkauparáðs sem innihélt m.a. yfirlit skrifstofu eigna og atvinnuþróunar Reykjavíkurborgar vegna Nauthólsvegar 100, með vísan í bókun á síðasta fundi ráðsins þar sem óskað var eftir því að fá yfirlit yfir allar greiðslur sem Reykjavíkurborg hefur innt af hendi vegna Nauthólsvegar 100 á árunum 2017 og 2018 (Bragginn í Nauthólsvík). Fulltrúar stjórnarandstöðunnar óskuðu eftir að fá yfirlitið sent og þegar það er skoðað er það ákaflega ófullkomið í ljósi upplýsinga sem borgarfulltrúar verða að hafa til að geta sinnt eftirlitsskyldu sinni með fjárstjórnarvaldi borgarinnar. Einungis eru gefnir upp verkliðir og upphæðir.“

Þú gætir haft áhuga á þessum


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: