Þetta eru nú meiri mennirnir, Halldór Benjamín og Davíð Oddsson. Það er sem verkbanninu sé fyrst og síðast stefnt gegn vinnudeilusjóði Eflingar. Davíð skrifar í Moggann í dag:
„Markmið sjóðsins er að styrkja félagsmenn í verkföllum eða verkbönnum þegar félagið á í vinnudeilum.“ Skýrara gæti það ekki verið.
Þarna segir ekkert um hversu mikið eða hversu lengi Efling þarf að styrkja félagsfólk. Ætli sé ekki best fyrir Eflingu að fara sér rólega. Óvíst er hversu lengi leiftursóknin gegn fjárhag Eflingar mun standa. Þetta er aum hefndaraðgerð sem mun aldrei ganga upp. Leit kannski vel út á töfluæfingu í Borgartúni 35. En lífið er ekki töfluæfing.
-sme