Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar, pukrast ekki neitt. Hafi hún þökk fyrir það. Hún segir blákalt að flokkur sinn sé til sölu. Hún segist einungis selja fáist gott verð fyrir.
Fréttir herma að hún og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, hafi verið kölluð í Víglínuna til að ræða borgarmálefni. Hvers vegna er ekki vitað. Hvorugt þeirra svo mikið sem býr í Reykjavík. Hún í Hafnarfirði og sem fyrr er óvíst hvar Sigmundur Davíð býr.
Morgunblaðið segir fréttir af þættinum þar sem formennirnir voru: „Sagði Sigmundur þá að hann vonaðist til þess að Viðreisn myndi ekki renna beint inn í núverandi meirihluta í borginni og sagði Þorgerður að þau myndu berjast fyrir sínum málum. „Við munum selja okkur dýrt.““
Svo notað sé handboltamál verður að segja að í næstu sókn hafi verið dæmdur ruðningur á formann Viðreisnar. Mogginn segir svo frá: „Þorgerður ítrekaði meðal annars loforð flokksins um að berjast fyrir því að hækka laun kennara og setja áherslu á menntun. Sagði hún að fjármagna ætti 100 þúsund króna hækkun kennaralauna með gistináttagjaldi sem eigi að færast frá ríki til sveitarfélaga.“
Hvaðan kemur hugmyndin um að Viðreisn sé þess umkomin að breyta hvert gistináttagjaldið fer? Er fólkið að tapa sér? Eða er búið að undirrita eða samþykkja sölusamninga? Er Viðreisn veðsett?