Gunnar Smári skrifar:
Miðstjórn Alþýðusambandsins um skattabreytingar fjárlagafrumvarpsins: „Miðstjórn ASÍ fagnar því að loks liggi fyrir nýjar tillögur stjórnvalda að breytingum á tekjuskattskerfinu sem beðið hefur verið með mikilli eftirvæntingu. Breytingarnar skila sér hins vegar of seint í vasa launafólks og stjórnvöld bregðast hlutverki sínu við að láta þá sem eru aflögufærir greiða réttlátan hlut til samfélagsins til að tryggja viðunandi fjármögnun velferðar og samfélagsinnviða … Við sættum okkur aldrei við skattkerfisbreytingu sem lág- og millitekjufólk greiðir sjálft fyrir með veikara velferðarkerfi, verri innviðum, notendagjöldum og auknum nefsköttum. Við viljum sanngjarnt skattkerfi sem eykur jöfnuð og fjármagnar velferð.“