Gunnar Smári skrifar:
Verkamannaflokkurinn er að vinna fyrstu daga kosningabaráttunnar í Bretlandi. Þetta er mæling YouGov frá 11.-12. nóvember ( og breyting á fylgi frá því daginn áður en blásið var til kosninga):
- Íhaldsflokkurinn: 40% (+4)
- Verkamannaflokkurinn 30% (+9)
- Frjálslyndir demókratar 16% (–2)
- Brexit-flokkurinn 7% (–6)
- Græningjar 3% (–3)
Það stefnir í slag milli hinna hefðbundnu flokka. Brexit hefur hrunið, mældist með 26% eftir Evrópuþingskosningarnar, og þó hluti af fylginu færist yfir á Íhaldið er ekki bein tenging þarna á milli. Græningjar eru ekki að ná flugi, það stefnir ekki í kosningar um umhverfismál þrátt fyrir að að Extinction Rebellion-hreyfingin hafi verið áberandi. Frjálslyndir mælast enn háir, en hafa samt fallið síðan eftir Evrópukosningarnar þegar þeir mældust með um 23%.30 dögum fyrir kosningarnar 2017 mældi YouGov fylgi flokkanna svona (innan sviga það sem þeir unnu á eða töpuðu fram að kosningum):
- Íhaldsflokkurinn 46% (–2,5)
- Verkamannaflokkurinn 30% (+11)
- Frjálslyndir demókratar 11% (–3,4)
- Ukip 5% (–3,1)
- Græningjar 2% (–0,3)
Verkamannaflokkurinn er sem sé á sama stað og fyrir kosningarnar 2017, Íhaldið neðar, Brexit aðeins ofar en Ukip var, Frjálslyndir demókratar nokkru ofar en Græningjar á svipuðum slóðum.Þá kemur samkvæmisleikur. Ef restin af kosningabaráttunni veldur nákvæmlega sömu fylgissveiflum og 2017 verða þetta niðurstöður kosninganna:
- Íhaldsflokkurinn 37,5%
- Verkamannaflokkurinn 41,0%)
- Frjálslyndir demókratar 12,6%
- Brexit-flokkurinn 3,9%
- Græningjar 2,9%