Við erum mörg sem bíðum eftir hvað Katrín Jakobsdóttir hyggst gera varðandi framboð til forseta Ísland.
Bergþór Ólason, þingflokksformaður Miðflokksins, er meðal þeirra sem bíða eftir ákvörðun Katrín. „Af eða á.“ Bergþór sér fyrir sér ýmsar sviðsmyndir verði Katrín um kjurt eða ef hún fer í framboðið.
Bergþór skrifar grein sem birt er í Mogga dagsins. Skoðum aðeins:
„Ef forsætisráðherrann yfirgefur ríkisstjórnina yfir páskana þá standa flokkarnir frammi fyrir því að halda áfram eða slíta samstarfinu og mynda nýja ríkisstjórn eða boða til kosninga.
Hvorki Sjálfstæðisflokkur né VG eru á þeim stað gagnvart kjósendum að vilja fara í kosningar. Sjálfstæðisflokkurinn ætti þó alltaf að vera reiðubúinn í kosningar með sína vel þekktu „kosningavél“ á kantinum en annað má segja um VG. Framsókn bíður átekta.
Ef Katrín gefur hins vegar ekki kost á sér til embættis forseta Íslands, þá verður gaman að sjá hvað VG-liðar fá í staðinn fyrir að halda oddvitanum sínum, líminu í ríkisstjórninni, í forsætisráðherrastólnum. Verður fyrirgreiðslan á sviði útlendingamála eða hvað – eitthvað þarf VG til að rétta sinn hlut í könnunum?“
Bergþór opnar okkur sýn í baktjaldamakkið. Í lok greinarinnar segir Bergþór:
„Í öllu falli er farsi fram undan, hvort sem forsætisráðherrann hverfur af vettvangi eða ekki. Farsi sem sjálfur rithöfundurinn Katrín Jakobsdóttir gæti ekki skáldað í næsta reyfara.“