Alþingi Árni Páll Árnason, formaður Samfylkingarinnar, sagði á Alþingi, nú fyrir skömmu, að vaxtabætur hafa hrunið að verðgidi í tíð þessarar ríkisstjórnar og séu nú um þriðjungur þess sem þær voru á fyrrakjörtímabili.
Hann sagði húsaleigubætur hafa ekki hækkað. „Þriðjungur fólks var skilin eftir í skuldaleiðréttingum ríkisstjórnarinnar, það er leigjendur og fólk með búseturétt.“
Eygló Harðardóttir félagsmálaráðherra sagðist vera í nánu samstarfi, t.d. við aðila vinnumarkaðarins. Hún sagðist vilja í sínum málum lágmarka áhættu ríkissjóðs.
Umræðan um húsnæðismálin stendur yfir á Alþingi.
Þú gætir haft áhuga á þessum