Sanna Magdalena Mörtudóttir:
Meirihlutinn hefur kallað eftir hagræðingaraðgerðum og við sósíalistar lögðum til að laun okkar borgarfulltrúa og fyrstu varaborgarfulltrúa myndu ekki hækka á næsta ári. Með því hefði borgin sparað 29 milljónir árið 2023. Ekki var vilji til að skoða það og mér finnst svolítið sérstakt að kalla eftir hagræðingu en það megi alls ekki skoða okkur laun sem eru mjög há í samanburði við marga sem vinna hjá borginni.