Velkomin til Íslands, spilltasta lands norðan Miðjarðarhafsins og vestan Úralfjalla
Gunnar Smári skrifar:
Morgunblað útgerðarinnar er svo mikill brandari. Svona eru Kynnisferðir kynntar í þessari frétt:
„Þannig herma heimildir ViðskiptaMoggans að Kynnisferðir séu meðal bjóðenda. Þar situr m.a. í stjórn Steinn Logi Björnsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri hjá Icelandair og forstjóri og eigandi Bláfugls. Þá herma heimildir blaðsins að Hörður Gunnarsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri Iceland Travel, sé Kynnisferðum til ráðgjafar um möguleg kaup á fyrirtækinu.“
Kynnisferðir eru sem kunnugt er að 2/3 hlutum í eigu fjölskyldu Bjarna Benediktssonar formanns Sjálfstæðisflokksins. Fjölskyldan seldi lífeyrissjóðum 1/3 félagsins fyrir fáeinu árum, náðu þá inn svo til öllu upprunalega kaupverðinu á öllu félaginu, eiga 2/3 hluta þess gratís eftir þessi viðskipti.
Fréttin í þessu máli er auðvitað að fyrir ári sömdu forráðamenn Icelandair björgunarleið félagsins í nánum tengslum við fjármálaráðuneyti Bjarna. Hluti þeirrar björgunar var að selja Iceland Travel, sem fyrirtæki fjölskyldu Bjarna er nú líklegasti kaupandi að.
Velkomin til Íslands, spilltasta lands norðan Miðjarðarhafsins og vestan Úralfjalla.
Og hvar er stjórnarandstaðan á meðan á þessu gengur? Hún er að hindra að Þórólfur Guðnason fari að níðist á fólki að ósekju. Fyrir stjórnarandstöðunni er það aðal hættan á Íslandi í dag. Það er ekki hægt að hlægja af þessu lengur.