Vaxandi óánægja með skerðingar lífeyris
Misvitrir stjórnmálamenn ákváðu á alþingi að skerða lífeyri almannatrygginga.
Björgvin Guðmundsson:
Óánægjan með skerðingarnar vegna lífeyrissjóðanna er
alltaf að aukast. Gremja eldri borgara, sem sparað hafa í lífeyrissjóð alla
sína starfsævi, er gífurleg. Þessir eldri borgarar telja sig svikna. Þeir fóru
að greiða í lífeyrissjóð í trausti þess, að lífeyrissjóðurinn yrði hrein viðbót
við almannatryggingar. ASÍ gaf út yfirlýsingu,sem kvað á um þetta.
En hvernig má það það þá vera, að mikill hluti lífeyrissparnaðarins gufi upp, þegar á að fara nýta hann á
eftirlaunaárum? Svarið er þetta: Misvitrir stjórnmálamenn ákváðu á alþingi að
skerða lífeyri almannatrygginga hjá þeim eldri borgurum,sem fengu greiðslur úr
lífeyrissjóði vegna sparnaðar. Þetta virkar alveg eins og eignaupptaka þó þetta
sé ekki eignaupptaka. Þetta er siðlaust.
Ég hef sagt það oft áður, að hætt er við því að launþegar hætti að greiða í lífeyrissjóð ef þessum skerðingum verður ekki hætt. Menn sjá ekki fullan tilgang í því að greiða í lífeyrissjóð, ef þeir njóta ekki eftirlaunanna að fullu á eftirlaunaárum. Áður en kerfið springur þarf að láta reyna á það fyrir dómstólum hvort þessar miklu skerðingar eru löglegar. Væntanlega verður unnt að hnekkja þeim á löglegan hátt.