Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknarflokksins, vildi ekki útiloka að sett verði lög á kjarabaráttu Eflingar. Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir spurði ráðherrann um þetta í Kastljósi kvöldsins..
Sigurði Inga vafðist tunga um tönn. Hann sagði enga beiðni hafa borist um lagasetningu en hann útilokaði hvorki eitt né neitt.