Arna Lára Jónsdóttir á Alþingi:
„Við getum ekki haldið áfram að reka ríkissjóð á yfirdrætti. Við verðum að vera með Seðlabankanum í liði og sýna aga og ábyrgð í ríkisfjármálum. Það er það mikilvægasta sem við getum gert fyrir heimili og fyrirtæki landsins. Ekkert okkar er ánægt með stýrivexti í 8% og verðbólgu upp á 5,6%. Saman verðum við að takast á við þetta. Það er reyndar margt sem bendir til þess að verðbólga gæti farið að hjaðna. Hægt hefur á launaskriði, raunverð á íbúðum hefur verið að lækka, það hefur dregið úr innflutningi fólks til landsins og vinnumarkaðurinn er að kólna. Ábyrgð í ríkisrekstri ætti að hjálpa til við að slá á verðbólguvæntingar, þannig að það eru merki um að verðbólgan gæti farið að lækka,“ sagði Arna Lára Jónsdóttir, Samfylkingu í fjárlagaumræðunni.
Næst sagði hún:
„Uppsafnaður halli ríkissjóðs frá árinu 2019 er 866 milljarðar. Ég ætla að fá að endurtaka: 866 milljarðar. Það er yfirdrátturinn sem við þurfum að borga. Við verðum að snúa af þessari leið. Kostnaðurinn af þessum uppsafnaða halla er svakalegur. Vaxtagjöld ríkisins á næsta ári eru áætluð 168 milljarðar. Til að setja þessar háu tölur í samhengi svo fólk tengi við þær, alla vega er það þannig fyrir mig að þessar tölur eru svo háar að ég á erfitt með að setja þær í samhengi, þá væri hægt að byggja tíu þjóðarhallir bara fyrir vaxtagjöldin. Fyrir sömu fjárhæð væri hægt að fjármagna stórar samgönguframkvæmdir á borð við Sundabraut og Fljótagöng, byggja hjúkrunarheimili og eiga pening eftir. Jarðgangaáætlun stjórnvalda er metin á 161 milljarð. Vaxtagjaldaupphæðin er af þeirri stærðargráðu að hún er á við nýjan Landspítala. Það mun því mikið ávinnast með því að ná tökum á ríkisfjármálum og skila ríkissjóði réttum megin við núllið. Vaxtakostnaður ríkisins hefur aukist gríðarlega á fáum árum, nánar tiltekið um 109 milljarða frá árinu 2021 og fram á þetta ár. Þeir fjármunir sem fara í vexti geta ekki á sama tíma farið í heilbrigðisþjónustu, menntun, löggæslu, samgöngur eða uppbyggingu innviða.“
Hér má lesa alla grein Örnu Láru Jónsdóttur.