Stjórnmál / Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknar, réttlætir nýja flata skatta sem verða innheimtir í vegum landsins: „Allt eru þetta verkefni sem fela í sér verulega styttingu leiða og aukið öryggi en þeir sem vilja ekki nýta sér þessi mannvirki geta áfram farið gömlu leiðina en munu þá verða af þeim ávinningi, fjárhagslegum og varðandi öryggi.“
Pælið í þessu. Tvöfalt vegakerfi. Nýir, flottir og traustir vegir fyrir þá efnameiri. Fátæka fólkið verður áfram að fara um gamla, holótta og ömurlega vegi.
Stíll núverandi ríkisstjórnarinnar er að leggja á nýja skattar hér og þar og alltaf er sama trixið notað. Flatir skattar þannig að allir borgi sömu krónutölu. Burt séð frá tekjum. Viðleitni ríkisstjórnarinnar til að auka ójöfnuð er mikil og er ráðandi. Þar tekst ríkisstjórninni óvenju vel upp.
Fyrir síðustu kosningar fór Sigurður Ingi mikinn og sagði ítrekað að ekki þyrfti að hækka skatta þó loks yrði unnið að samgöngubótum. Hann hafnaði alfarið skattheimtuleið Jóns Gunnarssonar og Sjálfstæðisflokksins.
Sigurður Ingi snerist á punktinum þegar hann munstraði sig og sinn flokk í ríkisstjórnina. Viðsnúningur Sigurðar Inga var mikill og með þeim mestu sem sést hafa. Og er af nógu að taka.
Stíll núverandi ríkisstjórnarinnar er að leggja á nýja skattar hér og þar og alltaf er sama trixið notað. Flatir skattar þannig að allir borgi sömu krónutölu. Burt séð frá tekjum. Viðleitni ríkisstjórnarinnar til að auka ójöfnuð er mikil og er ráðandi.