„Nú er starf þingmanna orðið þægileg og vel launuð innivinna, ásamt upphitaðri skrifstofu með aðstoðarmenn á hverjum fingri. Toppsætið í þessari vegferð á minnsti þingflokkurinn, sem í eru tveir þingmenn, með þrjá starfsmenn. Allt á kostnað skattgreiðenda,“ skrifar Gunnar Ingi Birgisson, fyrrverandi bæjarstjóri og alþingismaður í Moggann í dag.
„Þrátt fyrir þessa veglegu fjárhagsaðstoð frá skattgreiðendum, yfir 700 milljónir króna, auk fjölda aðstoðarmanna, er erfitt að sjá að þetta hafi haft í för með sér aukna skilvirkni,“ skrifar Gunnar.