Ragnar Önundarson skrifaði:
Ástæðurnar fyrir því að stjórnvöld taka ekki upp evru eru tvær og hvorug hagfræðilegs eðlis:
* Forsenda evru er full aðild að ESB
* Átökin um tekjuskiptinguna valda því að þjóðin skiptir öðru hvoru á milli sín meiri verðmætum en eru til skiptanna. Engar líkur eru á að það mundi breytast við upptöku evru.
Að tengja krónuna við evru yrði gagnslaust „mannanna verk“, sem yrði breytt strax við næstu „kollsteypu“. „Nær væri að skipta um þjóð í landinu,“ sagði þungaviktarhagfræðingur við mig.