Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, reynir þessa dagana að losa sig við íbúð á efstu hæð í Trump Park Avenue byggingunni í New York. Hann, eða sjóður hans, vill fá litla 4 milljarða fyrir íbúðina sem er á efstu hæð hússins. Trump var enn skráður eigandi íbúðarinnar, ásamt tíu öðrum íbúðum í húsinu, samkvæmt fasteignaskrá þar vestra, eftir að hann var vígður til embættis forseta Bandaríkjanna, í nóvember í haust.