Til að berja sér á brjóst
Ekki fékkst samþykki, í upphafi þingfundar, að taka tillögu Jóns Þórs Ólafssonar Pírata, um lækkun launa þingmanna, á dagskrá þingsins.
Jón Þór segir málið brýnt og ekki þola bið. Óvissa sé á vinnumarkaði þar sem hætta er á, ekki síst vegna úrskurðar kjararáðs um launahækkun til þingmanna og annarra háttsettra embættismanna.
Benedikt Jóhannesson , fjármálaráðherra og formaður Viðreisnar, sagði þingmenn síns flokks ætla ekki að styðja að málið yrði sett á dagskrá í dag. Hann sagðist ekki taka þátt í að því að þingmenn noti mál sem þetta til að berja sér á brjóst.
Hér má heyra mest af því sem Benedikt sagði.
Þú gætir haft áhuga á þessum