Fréttir

Þriðjungur fékk neitun

By Sigrún Erna Geirsdóttir

September 25, 2014

Af 9.300 umsóknum vegna greiðsluerfiðleika sem bárust umboðsmanni skuldara á fjórum árum, var tæpum þriðjungi þeirra synjað um greiðsluaðlögun.Rúmur helmingur umsóknanna, sem búið er að vinna úr, eða sem nemur um 2.500 umsóknum, hefur lokið með samningi, en 30% umsókna hefur verið synjað, og í 17% tilfella dró umsækjandi umsóknina til baka. Í þeim samningum sem náðst hafa hefur samist um eftirgjöf tæplega 22 milljarða króna, eða sem nemur um 8 milljónum króna pr. samning. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu sem stofnunin sendi frá sér í gær, en þá voru einnig kynntar niðurstöður þjónustukönnunar sem ráðgjafarfyrirtækið Maskína gerði fyrir embættið. Könnunin náði til þeirra sem notfærðu sér þjónustu embættisins dagana 23. maí til 23. júní 2014.