Stjórnmál

Þreytt leikrit Pírata

By Miðjan

February 08, 2023

Bryndís Haraldsdótitir Sjálfstæðisflokki rétt í þessu:

Þetta er orðið ansi þreytt leikrit hér með þessari dagskrártillögu og ég ætla að minna á það að hér fyrir jólin var samið um að taka þetta mál af dagskrá svo hægt væri að klára mikilvæg mál og gera hvað? Jú, að taka málið aftur til umfjöllunar í háttvritr allsherjar- og menntamálanefnd og að málið færi hér á dagskrá sem fyrsta mál eftir áramót. Það var hluti af samkomulaginu. Þetta sýnir að það er ekki hægt að semja við þingflokk Pírata. Ég velti fyrir mér, háttvirtir þingmenn: Hvað þurfa háttvirtir þingmenn margar ræður til að koma sínum sjónarmiðum á framfæri? Það liggur fyrir, hátt í 200 ræður núna. Okkur er ljóst hvert sjónarmið þingflokks Pírata er, en er ekki lýðræðislegra að við klárum þessa umræðu og förum í atkvæðagreiðslu um málið?