Sigurjón Þórðarson skrifar:
Það er engu líkara en að Þórdís K.R. Gylfa hafi misst fótanna um leið og hún datt inn um þröskuldinn í fjármálaráðuneytinu. Ekki er hún fyrr komin inn fyrir dyrnar en hún boðar niðurbrot á almannaþjónustu í kjördæmi sínu og að halda áfram með „söluna“ á Íslandsbanka og rifja þá upp í leiðinni dæmalausan spillingarferil formannsins í málinu.
Nær væri að hafa í forgangi hjá þingmanni Norðvesturkjördæmisins að losa um atvinnuhöft til sjósóknar í kjördæminu t.d. með því að opna fyrir strandveiðar, bæta vegakerfið og byggja upp virkjanir á Vestfjörðum.
Þessar áherslur og niðurbrot landsbyggðarinnar og þjónkun við örfáa auðmenn á borð við Guðmund í Brimi er svo gerólík nokkru sem ömmubróðir hefði getað lagt til.
Það kann ekki góðri lukku að stýra að tapa algerlega upprunanum.