„Landsfundir Sjálfstæðisflokksins eru ekki haldnir til að gára vatnið stutta stund heldur til að móta stefnu öflugasta stjórnmálaflokks landsins,“ skrifar Óli Björn Kárason.
Það er nú það Óli Björn. Síðast í gær hitti ég harðan flokksmann og í stuttu spjalli okkar var rifjað upp að síðasti landsfundur hafi samþykkt andstöðu við orkupakka þrjú.
En hvað varð úr? Hvað gerði þingflokkurinn? Virti hann vilja landsfundar? Svarið er nei. Nei. Það gerði þingliðið ekki. Þetta eitt situr fast í flokksfólki. Margt er ósátt við framgöngu þingliðsins.
Í dag berast fréttir af því að einn eitt Bjarnamálið er falið fyrir þingi og þjóð. Fyrirtækið Lindarhvoll sem Bjarni stofnaði til er vafasamt. Svo vafasamt að slegið er þagnarmúr um það. Birgir Ármannsson forseti þingsins gætir þess vel og vandlega að sitja sem fastast á skýrslu um Lindarhvol.
Það verður ekki rætt í Laugardalshöllinni um komandi helgi.
-sme