Þingmenn Sjálfstæðisflokksins leggjast gegn harðari aðgerðum vegna Covid. Þeim þykir nóg komið. Þetta sagði þingmaðurinn Vilhjálmur Árnason í morgunfréttum RÚV rétt áðan.
Um aðgerðir vegna fjölda smita sagði Vilhjálmur:
„En þær þurfa þá að allavegana að fela í sér einhverjar upplýsingar til að rökstyðja aðgerðirnar; hvert er markmiðið með þeim og hvert er planið fram á við.“
Þingmenn flokksins vilja ekki að ríkisstjórnin ein ráði för, og þar á meðal gagnrýna þeir eigin ráðherra:
Fari svo að tillögur sóttvarnalæknis verði samþykktar á ríkisstjórnarfundi í dag, munið þið gera athugasemd við það? „Ég er viss um að allavegana einstaka þingmenn muni gera athugasemd við það. Þá er kjarninn í því að við hefðum viljað að Alþingi hefði komið frekar að málum.“
Samkvæmt þessu hyggjast þingmenn flokksins bjóða Bjarna formanni sem og öðrum ráðherrum flokksins birginn.
Í viðtali við mbl.is segir formaður Framsóknar, Sigurður Ingi Jóhannsson: „Þetta horfir þannig við okkur að þrátt fyrir að staðan sé almennt góð hefur smitunum verið að fjölga og þetta nýja afbrigði greinilega meira smitandi. Ef við horfum á reynsluna, sérstaklega í Danmörku, þá segir það okkur að skynsamlegt sé að fara varlega. Það er í því ljósi sem við förum á þennan ríkisstjórnarfund og tökumst á við þetta verkefni sem virðist engan enda ætla að taka.“