- Advertisement -

Þingmálum Flokks fólksins hent í ruslið

„…munu hafa gríðarlega miklar afleiðingar fyrir fólkið í landinu sem er að glíma við ofurvexti og hrikalegar álögur sem er að svipta þau heimilinu sínu hérna handan við hornið.“

Inga Sæland.

Alþingi „Flokkur fólksins lagði inn 71 þingmannamál nú í upphafi þings. Venjan er sú að hér ríkir ekkert lýðræði. Venjan er sú að flest öll okkar mál og nánast öll eru sett í ruslið eftir að hafa fengið eina umferð í fastanefnd þingsins, koma aldrei hér til lýðræðislegrar atkvæðagreiðslu, enda liti það afskaplega illa út með mjög mikið af þessum þjóðþrifamálum sem við erum að mæla fyrir ef ríkisstjórnin myndi leggjast gegn þeim,“ sagði Inga Sæland á Alþingi í gærdag.

„Þannig að ég vil bara minna á að í dag mun Flokkur fólksins mæla fyrir tveimur grundvallarmálum sem bæði tvö munu hafa gríðarlega miklar afleiðingar fyrir fólkið í landinu sem er að glíma við ofurvexti og hrikalegar álögur sem er að svipta þau heimilinu sínu hérna handan við hornið. Annars vegar verður það húsnæðisliðurinn burt úr vísitölunni og er það fyrsta málið okkar og mun ég mæla fyrir því mjög fljótlega eftir þennan dagskrárlið, störf þingsins,“ sagði Inga og hélt áfram:

„Síðar í dag mun ég svo mæla fyrir frumvarpi um afnám verðtryggingar á neytendalánum. Við skulum átta okkur á því að loksins núna, eftir að Flokkur fólksins hefur mælt fyrir því að taka húsnæðisliðinn út úr neysluvísitölunni, mælingu neysluvísitölunnar, ár eftir ár úr þessum ræðustól, hæsta ræðupúlti landsins, mælt fyrir þeim frumvörpum sem hefur umsvifalaust verið fleygt í ruslið, loksins núna, öllum þessum árum síðar, virðist það vera svo að almenn viðurkenning sé á því að það hefði farið betur á því ef þessi húsnæðisliður hefði ekki verið í mælingum á verðbólgunni. En svona er staðan í dag. Hér hafa bæði hæstvirtur forsætisráðherra og fleiri hæstvirtir ráðherrar ásamt hagfræðingum úti um allt talað um mikilvægi þess að taka húsnæðisliðinn út úr vísitölunni því að þá væri verðbólgustigið hér 3,6%. Þannig að við skulum nú sjá, herra forseti og kæru áhorfendur og áheyrendur, hvernig lýðræðið er í rauninni hér á Alþingi Íslendinga og hvað er að marka þessa ríkisstjórn,“ sagði Inga Sæland.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: