Þetta er hugarfarið í verki og mannúðin sem ríkir innan stjórnarflokkanna og ríkisstjórnarinnar.
Oddný Harðardóttir skrifar:
Meirihluti fjárlaganefndar Alþingis valdi að að draga úr fjármunum frá fyrri umræðu fjármálaáætlunar, til öryrkja, aldraðra og þeirra sem þurfa á þjónustu ríkisins að halda. Þessir hópar fá minni stuðning og þjónustu en ráð var fyrir gert en auðmenn geta slakað á því þeir fá allt óskert. Enginn stóreignaskattur, fjármagnstekjuskatti haldið lægstum hér allra Norðurlanda og ekki einu sinni rætt að hugsanlega megi bæta við tekjuskattsþrepi á þá allra tekjuhæstu.
Meirihluti fjárlaganefndar hugar vel að þeim sem eiga nóg en hinir þurfa að bíða og taka á sig efnahagslægðina. Reyndar þeir sömu og fengu ekki að njóta góðærisins.
Og svo bíta þau höfuðið af skömminni með því að býtta á þróunaraðstoð við fátæk ríki og hernaðaruppbyggingu á Keflavíkurflugvelli.
Þetta er hugarfarið í verki og mannúðin sem ríkir innan stjórnarflokkanna og ríkisstjórnarinnar.
Þetta er hneyksli og til háborinnar skammar!
Skrifin birtust á Facebooksíðu Oddnýjar.