Þetta er fólkið sem Edda Falak segist tengja minnst við
Edda Falak hefur lítinn sem engann áhuga á að klifra upp hið fornfræga fjall Esjuna, og nær bara ekki tengingu við fólk sem fer í tíðar Esju-ferðir.
Edda vill að fólk viti af þessu.
Hún segir:
„Fólki sem finnst gaman að fara upp Esjuna er fólkið sem ég tengi minnst við.“
Gamli fréttahaukurinn G. Pétur Matthíasson, er ekki á sama máli og Edda og hvetur hana til að prófa slíka göngu:
„Prufaðu, spái því að það komi þér á óvart og það sem meira er þú kæmir sjálfri þér óvart. Bara yndislegt.“
Edda svarar:
„Ég hef oft farið upp Esjuna og það var alltaf jafn leiðinlegt.“
Sumir eru sammála Eddu – til dæmis Ólöf Tara, sem segir:
„Öll fjöll eru skemmtilegri en Esjan.“
Óskar Steinn spyr Eddu að þessu:
„En hugsanlega fólkið sem þú ættir að rækta tengslin sem mest við?“