- Advertisement -

Þér að kenna eigir þú ekki fyrir út­borgun í í­búð

Sanna Magdalena Mörtudóttir:

Hvernig væri að virkja þennan kraft út á við og skella skuldinni þangað sem hún á raunverulega heima? Á fjárfesta sem sópa til sín íbúðum og þar með ræna fjölskyldum möguleika á að skapa sér gott heimili.

Við búum í samfélagi þar sem samábyrgðinni hefur verið skipt út fyrir einstaklingsábyrgð. Í stað þess að búa í samfélagi þar sem allir leggja til út frá getu og grunnþörfum allra er mætt, þá eru skilaboðin þau að við berum ein ábyrgð á okkar stöðu. Ein og sér. Ef staðan þín er slæm, þá er það því þú ert slæm.

Dugnaður sé það eina sem komi þér í betri stöðu. Þú getur bara treyst á þig, þannig verður hlutverk hins opinbera að veita hjálp til sjálfshjálpar, eins og það er kallað. Kenna þessum fátæklingum fjármálalæsi, koma þeim í virkni, þá vænkist hagur þeirra. Ráðamenn hafa nýtt sér þessa orðræðu í áratugi til þess að koma ábyrgðinni frá sér, fela að þeir hafi klúðrað því að byggja upp gott og réttlátt samfélag.

Ef þú ert heima hjá þér í maski gagnvart því að hafa ekki byrjað að spara fyrr fyrir útborgun á íbúð, að hafa ekki breytt séreignasparnaðinum úr 2% í 4%, að hafa keypt þér tilbúið kaffi með sýrópi, að hafa leyft þér að versla í búðinni sem var næst þér en ekki þeirri ódýrustu og splæst í tannlæknaferð, þá ertu sennilega búin að tileinka þér hugmyndafræðina um að þú ein berir ábyrgð á þinni stöðu. Þú þurfir að standa þig betur.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Svamlandi um í samviskubiti…

Svamlandi um í samviskubiti gagnvart útgjöldum á munaði líkt og kaffi, mat og viðgerð á skemmdum tönnum, gerir það að verkum að þú ferð ekki að líta á skattleysi fjármagnseigenda sem vandamál, þú ferð ekki að greina skattalækkanir fyrri áratuga á ríkt fólk og stórfyrirtæki sem vandamál. Samviskubitið sannfærir þig um að halda betra bókhald, borða minni mat og sleppa félagslegum viðburðum.

Hvernig væri að virkja þennan kraft út á við og skella skuldinni þangað sem hún á raunverulega heima? Á fjárfesta sem sópa til sín íbúðum og þar með ræna fjölskyldum möguleika á að skapa sér gott heimili. Á banka sem græða og græða á vaxtagjöldum sem þú greiðir fyrir að vera ekki nógu hagsýn húsmóðir með himinháa yfirdráttarheimild til að komast í gegnum mánuðinn. Á ójöfnuðinn í samfélaginu þar sem þau sem eiga mest taka sífellt meira til sín á kostnað þeirra sem ekkert eiga.

Þú ert nefnilega ekki vandamálið, heldur misskipting auðs og stjórnvöld sem leyfa þeirri misskiptingu að viðgangast. En það er kannski erfitt fyrir ráðamenn með eina og hálfa milljón í laun á mánuði og einkabílstjóra að sjá það?


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: