Þarf að taka til hendinni í heilbrigðismálum
- segir Svandís sem vill leggja meiri áherslu á opinbera þjónustu heilbrigðismála.
„Í stjórnarsáttmála ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur fjallar fyrsti kaflinn um heilbrigðismál. Þar þarf að taka til hendinni enda hefur heilbrigðisþjónustan ekki notið raunverulegrar uppbyggingar allt frá hruni.“
Þetta má lesa í grein sem Svandís Svavarsdóttir skrifar í Moggann í dag. Þetta eru sannanlega orð að sönnu. Víða blasir þörfin við. Sjá nýjasta dæmið má lesa hér að neðan.
Svandís ruggar ríkisstjórnarbátnum og sýnilegt er að það er verk að vinna hjá Bjarna Benediktssyni, þar sem Svandís sér fyrir að efla opinbera þjónustu, þá eflaust með því að draga úr, að sama skapi, heilbrigðisþjónustu sem sinnt er af einkarekstri.
„Sækja þarf fram í þágu opinberrar þjónustu bæði til að nýta opinbert fé eins vel og kostur er en ekki síður til þess að leggja megináherslu á jöfnuð og gæði í þróun þjónustunnar. Skapa þarf skýra heilbrigðisstefnu fyrir Ísland með hliðsjón af þörfum allra landsmanna þar sem einstakir þættir þjónustunnar verða skilgreindir betur og samspil þeirra. Sú vinna stendur nú yfir og áætlað er að þingsályktunartillaga um heilbrigðisstefnu verði lögð fram á vorþingi.“
Hætt er við að mörgum sjálfstæðismanninum renni kalt vatn milli skinns og hörunds við þennan lestur.
Svandís ítrekar, það sem allir svo sem vita, að kominn er tími til aðgerða í heilbrigðismálum.
„Nú er kominn tími til að leggja megináherslu á þennan mikilvæga málaflokk, heilbrigðismálin. Það mun ríkisstjórnin gera og sú áhersla endurspeglast í þessum fjárlögum. Þannig sköpum við betra heilbrigðiskerfi fyrir alla.“
92 ára liggur á salerni og hefur kúabjöllu til að gera viðvart