Miðborg Reykjavíkur er í tilvistarkreppu. Sem og svo margt annað. Eftir að hafa ekið upp og niður Laugaveginn eru stöðumælaverðir nánast eina fólkið sem sést þar. Þeir fara um með sektarmiðablokkirnar sínar.
Þeir ganga á milli þeirra örfáu bíla sem hefur verið lagt í miðborginni. Tilbúnir að sekta ef einhver fer yfir á tíma. Erfitt er að skilja hvers vegna er ekki hætt að rukka fyrir bílastæðin meðan samkomubann er í gildi.
Annað er svo hvað verður svo? Ferðafólki mun stórfækka. Á samt að loka Laugavegi og nágrenni? Hvað á að taka við? Veit það einhver? Eða skiptir það kannski ekki máli?
Núverandi ástand er vonandi algjör undantekning. Miðborgin er ekki í stuði. Ekki bara vegna kórónuveirunnar. Gangi áform borgarinnar eftir er hætt á að Laugavegurinn verði draugagata, ekki verslunargata.
Stöðumælaverðirnir mega eiga það að þeir eru samviskusamir og sinna starfi sínu af einurð.