Þakkir til Kára og hans fólks
Vilhjálmur Birgisson skrifar:
Það verður að segjast eins og er að Kári Stefánsson hefur reynst íslensku þjóðinni oft á tíðum afar vel.
Eins og öll þjóðin veit þá bauð hann og hans starfsfólk til að skima fyrir Kórónuveirunni og nú liggur fyrir að upp undir 80% af öllum skimunum sem áttu sér stað kom frá hans fólki. Það kom fram í þessum Kastljósþætti að kostnaður sem fyrirtækið lagði til við að skima nemur 3 milljörðum!
Það er morgunljóst að án aðkomu Íslenskrar erfðagreiningar hefði ekki tekist eins vel til við að vinna bug á veirunni.
En þetta er ekki það eina sem Kári Stefánsson hefur gert fyrir þjóðina en Íslensk erfðagreining gaf íslensku þjóðinni jáeindaskanna til notkunar á Landspítalanum og ef ég man rétt þá nam sá kostnaður á sínum tíma um einum milljarði.
Ég vil segja við Kára Stefánsson og allt hans fólk, þúsund þakkir fyrir ykkar góða framlag til íslensku þjóðarinnar!