Gunnar Smári skrifar:
Hin ríku, eigendur stórfyrirtækja og fjármagnseigendur grafa kerfisbundið undan samfélaginu. Til að byggja upp gott samfélag þarf af eyða eituráhrifunum af þessu fólki. Fyrsta skrefið er að setja nálgunarbann á hagsmunasamtök hinna fáu svo þau geti ekki haft samband við stjórnsýslu- og stjórnmálafólk. Næst er skattleggja þau rækilega til að vega upp á móti grunnskekkjukapítalismans, sem sífellt færir fé frá þeim sem ekki eiga til þeirra sem mikið eiga. Síðan þarf að lýðræðisvæða atvinnulífið svo engum takist að auðgast á kostnað annarra.