Þau fjögur eiga mestu setningarnar í Mogga dagsins. Byrjum á ritstjóranum:
„Morgunblaðið hefur um langt skeið lagt mikið upp úr því að þar hafi öll sjónarmið siðaðrar umræðu rými…,“ skrifar Davíð í leiðara. Átti hann ekki að taka fram að þetta eigi ekki við leiðarana, Staksteina og Reykjavíkurbréfið?
Sigurður Ingi er stundum ómótstæðilegur:
„Niðurstaðan er að á næstu fimmtán árum verður 120 milljörðum króna varið til þess að greiða leið um höfuðborgarsvæðið,“ skrifar hann og reynir að sleppa fyrir horn. Hann veit sem er að hann þarf ekki að standa við þetta. Verður ekki samgönguráðherra svo lengi. Vonandi ekki.
Þá er komið að því besta. Katrín Jakobsdóttir virðist vera að vakna upp við vondan draum:
„Við vitum að það þarf að hækka grunnframfærslu almannatrygginga með sérstakri áherslu á þá tekjulægstu í þeim hópi.“ Nú, hvað segirðu Katrín. Varstu að fatta þetta núna? Það eru kosningar eftir tvo daga.
Og loks er komið að Bjarna okkar Ben. Hans setning smellpassar við setningu Katrínar, það er eins og hann hafi lesið hana og segir:
„Við ætlum að halda áfram á sömu braut.“ Þá vitum við það. Sem sagt þau tekjulægstu geta gleymt því sem Katrín sagði. Hafa þurft þess áður. Og þurfa þess enn og aftur. Bjarni ræður og hann segir: „Við ætlum að halda áfram á sömu braut.“ Það var og.