Vilji er til að bola einu konunni í þingflokki Miðflokksins burt. Heimildir Fréttablaðsins segja að Þorgrímur Sigmundsson, varaþingmaður Miðflokksins í Norðausturkjördæmi, muni sækjast eftir annað sæti á lista flokksins fyrir komandi kosningar.
Þar er Anna Kolbrún Árnadóttir fyrir. Og vill verða áfram. Formaðurinn, Sigmundur Davíð, er í fyrsta sæti listans. Og verður.
Eins herma þessar sömu heimildir að sótt verði að Gunnari Braga, fyrrverandi varaformanni Miðflokksins og þingflokksformanni.
Una Margrét Óskarsdóttir er sögð vilja fá forystusætið í Kraganum, þar sem Gunnar Bragi er fyrir.
Þá eiga þeir Birgir Þórarinsson og Karl Gauti Hjaltason eftir að bítast um forystusætið á Suðurlandi.
Uppstilling verður hjá Miðflokki í öllum kjördæmum. Staða flokksins er afar bágborin þessa dagana. Fylgið hefur tálgast af Miðflokknum.