„Hvers vegna heldur Róbert Spanó að Tyrkir hafi viljað hengja á hann orðu? Dettur honum ekki í hug að það kunni að vera vegna viljans til að gera hann vinveittan þeim stjórnvöldum í þessu landi, sem sífellt þurfa að verja hendur sínar fyrir dómstólnum? Mun hann láta það eftir þeim?“
Þannig skrifar hæstaréttardómarinn fyrrverandi, Jón Steinar Gunnlaugsson, í Mogga dagsins.
„Það er auðvitað forsmán ef dómarar við dómstólinn eru svo hégómlegir að vilja þiggja svona viðurkenningar fremur en að afþakka þær í þágu þeirra hagsmuna sem þeim hefur verið trúað fyrir að gæta í þágu almennra borgara í aðildarríkjum að dómstólnum. Það er sorglegt að íslenski dómarinn við dómstólinn skuli falla á kaf í þennan pytt. Vonandi drukknar hann ekki.“
Það sem Jón Steinar segir á við svo margt. Blaðamenn, stjórnmálamenn, embættismenn og fleiri. Þáði ráðherrann baðferð og „velgjörning“ hjá hótelinu eða ekki? Og ef, hvað þá? Féll ráðherrann í pyttinn? Ráðherrann vill ekki svara. Vinkonan, sem starfar í fjölmiðlum, þáði og merkti sig þar með til allrar framtíðar. Hún gengur erinda þeirra sem borga.
Góðar ábendingar hjá Jóni Steinari. Hégóminn er hættulegur.