„Hagsmunabarátta sérfræðilækna á sér engin takmörk. Þeir vilja hafa frjálsan aðgang að sjúklingum með oflækningum (eins og liggur fyrir í rannsóknum) og þeir vilja hafa frjálsan aðgang að ríkissjóði,“ segir Haukur Arnþórsson stjórnsýslufræðingur.
„Dag eftir dag djöflast formenn og stjórnarmenn hagsmunasamtaka lækna á okkur í fjölmiðlum og heimta sitt, nú síðast í Fréttablaðinu í dag. Þeir beita blekkingum og röngum staðhæfingum sem þeir svo fabúlera út frá: t.d. að hafna því að fyrirkomulag sem reynist vel á hinum Norðurlöndunum gangi upp.
Og þeir kunna engar siðareglur og meðal annars ekki læknaeið Hippókratasar – en beita sjúklingum fyrir sig. Lægra er ekki hægt að leggjast fyrir peninga.“
Hér frétt um hvernig læknaverk eru flutt skipulaga frá Landspítala og á læknastofur.
Hér frétt um offjárfestingar í læknaþjónustu:
Hér er frétt þar sem þáverandi landlæknir talar um sjálftökukerfi lækna.