Félagsmenn Eflingar hafa meiri áhyggjur af eigin afkomu en áður.
Í nýrri könnun sem Gallup framkvæmdi meðal félagsmanna Eflingar-stéttarfélags kemur í ljós afdráttarlaus stuðningur við kröfugerð félagsins í kjarasamningum. Tæplega 80% félagsmanna telja hana sanngjarna og sama hlutfall segist hlynnt því að fara verkfall til að knýja á um launakröfur verkalýðsfélaganna.
Það er ekki síst erlendur hluti vinnuaflsins sem að fylkir sér bak við launakröfurnar en samkvæmt niðurstöðum könnunarinnar hefur stuðningur við kröfur og verkfallsaðgerðir auk væntinga um launahækkanir í kjölfar kjarasamninga tilhneigingu til að vera meiri meðal félaga af erlendum uppruna.
Þá leiðir könnunin í ljós mikla aukningu á fjárhagsáhyggjum meðal félagsmanna frá launakönnun sem framkvæmd var í ágúst síðastliðnum. En þær aukast um 16% á milli mælinga úr 47% sem hafa miklar eða mjög miklar áhyggjur í kjarakönnun í ágúst 2018 í 63% í janúar 2019. Þetta eru mestu fjárhagsáhyggjur sem hafa mælst í könnunum Eflingar frá hruni.
Spurningarnar voru lagðar fyrir fullvinnandi félagsmenn Eflingar með netkönnun á tímabilinu 19.-26. janúar. Haft var samband við 4758 félagsmenn og þar af svöruðu 1350. Niðurstöður voru vigtaðar út frá atvinnugrein og uppruna.