Synir Egils verða í beinni útsendingu klukkan 12:40 í dag. Fullt hús af fínustu gestum.
Að þessi sinni koma Ingvar Smári Birgisson lögmaður, Erna Bjarnadóttir hagfræðingur og Jóhann Páll Jóhansson þingmaður og ræða fréttir vikunnar en líka stöðuna í stjórnmálunum.
Þeir bræður taka stöðuna á þingi og fá svo Hrafnkel Ásólf Proppé skipulagsfræðing, Þorvald Þórðarson eldfjallafræðing og Pál Einarsson jarðfræðing til að ræða áhrif náttúrvár á skipulagsmál.
Ekki er nokkur vafi á að umræðurnar verða fjörugar. Samstöðina er að finna hjá Sjónvarpiu Símans, í útvarpi á 89,1 og á öllum hlaðvarpsveitum og svo auðvitað á samstodin.is.
Þú gætir haft áhuga á þessum