„Svona getur maður verið vitlaus“
Sveinseyrarpóstur Sigurðar G. Tómassonar:
Slökkti á fréttunum. Nenni ekki að hlusta á þetta endalausa landamærakjaftæði.
Er svo snarruglaður í landafræðinni að mér finnst Keflavíkurflugvöllur vera innanlands. Svona getur maður verið vitlaus.
Fannst skemmtilegt að heyra Sigfús Halldórsson syngja eigið lag, Í Vatnsmýrinni eftir Tómas Guðmundsson. Upptaka frá 1952. Síðasta lag fyrir auglýsingar. Mikið á þjóðin að þakka þessum tveim.
Þú gætir haft áhuga á þessum
Héðan var að fara stjórn Skógræktarfélags Reykjavíkur. Og kvaddi stjórnina og þakkaði fyrir langa samfylgd. Sýndi þeim svo hús og gróður.