Hæstaréttarlögmaðurinn Sveinn Andri Sveinsson er brjálaður yfir fyrirhugaðri brottvísun um 300 einstaklinga sem sótt hafa um alþjóðlega vernd hér á landi. Fólkið verður á næstunni sent í flóttamannabúðir í Grikklandi.
„Það er grunnt á rasismann hjá dómsmálaráðherra og ríkisstjórninni, Mannvonska og heimska er aðalsmerki ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur,“ segir Sveinn Andri í færslu á Facebook og heldur áfram:
„Það er hins vegar óásættanlegt að ekki skuli eiga það sama við um fólk af arabískum og afrískum uppruna sem flýr stríðsátök og afleiðingar þeirra í sínu heimalandi. Það er síðan sér kapítuli að vísa eigi úr landi 300 manns sem margir hverjir hafa dvalið hér langdvölum og aðlagast íslensku samfélagi þegar helsta hindrunin fyrir upprisu íslensks ferðamannaiðnaðarins er skortur á vinnuafli,“