„Menn eru bara leiðir yfir því að það skuli ekki nást saman og finnst það ekki gott sjúklingana vegna. Það eru nokkrir dagar eftir fram að áramótum en við fáum ekki frekari svör frá viðsemjendum okkar um hvað tekur við.“
Þetta og meira segir Þórarinn Guðnason, formaður Læknafélags Reykjavíkur, í viðtali við Moggann. Víst er að óvissan er mikil.
Með öllu er óljóst hvert starf sérfræðilækna leiðir frá áramótum. Ekki er vitað hver aðkoma Sjúkratrygginga verður frá áramótum. Þórarinn reiknar með að læknar verði á stofum sínum. Engin svör fást um hvort sjúklingar verði þá að greiða fullt verð eða hvort Sjúkratryggingar komi til móts við sjúklinganna.
Ekki er annað að sjá en langt sé í að samningar takist. „Þær tillögur sem liggja fyrir eru bara þess eðlis að við getum ekki rekið fyrirtækin okkar við þær aðstæður sem verið er að leggja til. Við vitum í rauninni ekkert meira.“