„Til að toppa framkomu heilbrigðisráðherra gagnvart hjúkrunarheimilunum ákvað ráðherra einnig að greiða milljarð til handa starfsfólki heilbrigðisþjónustu ríkisins vegna Covid-19. Annað heilbrigðisstarfsfólk í velferðarþjónustunni virðist ekki eiga slíka umbun skilda þrátt fyrir að hafa staðið sig framúrskarandi vel við að vernda viðkvæman hóp íbúa fyrir veirunni, ekki bara á íslenskan mælikvarða heldur einnig á heimsmælikvarða,“ skrifa Hálfdan Henrysson og María Fjóla Harðardóttir stjórnarformaður og forstjóri Hrafnistu, í Moggann í dag.
„Í þessu samhengi er líka áhugavert að velta því fyrir sér hvers vegna Vífilsstaðir, sem Landspítalinn rekur sem biðdeild eftir varanlegu hjúkrunarrými, fá nærri 40% hærri daggjöld á sólarhring en önnur hjúkrunarheimili sem veita þó mun meiri og betri þjónustu en unnt er að veita á Vífilsstöðum,“ skrifa þau meðal annars í greininni.
„Við sem störfum að öldrunarmálum, sem eru órjúfanlegur og mikilvægur þáttur heilbrigðisþjónustunnar í landinu, erum að vonum döpur yfir þeirri sniðgöngu sem heilbrigðisyfirvöld sýna hjúkrunarheimilunum, íbúum þeirra og starfsfólki. Hvaða skilaboð eru stjórnvöld að senda? Ef það er vilji stjórnvalda að sjálfstætt starfandi hjúkrunarheimili hætti starfsemi og ríkið taki yfir reksturinn væri heiðarlegast að segja það beint út og skilmerkilega í stað þess að svelta þau til uppgjafar með sífelldum skerðingum. Við skorum því á stjórnmálaflokkana að efna fögur fyrirheit á sviði öldrunarmála. Við viljum vera bjartsýn og trúa á heiðarleika stjórnmálamanna í þeirri von að stjórnvöld efni þau fyrirheit sem gefin voru í stjórnarsáttmála ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur um að hugað yrði að því að styrkja rekstrargrundvöll hjúkrunarheimilanna. Raunin er að þveröfugt hefur verið farið að í þeim efnum,“ segja þau í greininni, sem er lengri.