- Advertisement -

Svandís á leik í stöðunni

…þá á Svandís því varla annan kost en draga VG formlega út úr ríkisstjórninni.

Össur Skarphéðinsson

Össur Skarphéðinsson skrifar grein um ríkisstjórnina og þá stöðu sem þar er.

„Það er algerlega á valdi Svandísar Svavarsdóttur, formanns VG, hvort Bjarni Benediktsson fær að halda áfram sem forsætisráðherra í þeirri illvígu kosningabaráttu sem nú fer í hönd. Sjálfur virðist hann ganga út frá því sem gefnu. En Svandís – og aðeins hún – á leiki í stöðunni sem geta fært henni frumkvæði í taflinu við Sjálfstæðisflokkinn. Þeir hafa þó hvergi komið fram í umfjöllun fjölmiðla.

Fjölmiðlar virðast þannig telja að ósk forsætisráðherra um þingrof feli sjálfkrafa í sér formleg stjórnarslit. Í kjölfarið verði svo starfsstjórn komið á laggir sem Bjarni leiði sem forsætisráðherra í gegnum kosningarnar. Þetta er hins vegar allt annað en sjálfgefið. Það er algerlega undir Svandísi komið.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Svandís á nefnilega þann leik að draga VG formlega út úr ríkisstjórninni…

Bjarni hefur nefnilega hvergi sagt, að hann hyggist biðjast lausnar fyrir ríkisstjórn sína. Aðeins, að hann muni óska eftir því við Höllu forseta að hún fallist á beiðni hans um þingrof. Þar með yrðu kosningar innan 45 daga. Ósk um þingrof er hins vegar ekki sjálfkrafa lausnarbeiðni fyrir ríkisstjórn. Það eru tveir formlega aðgreindir þættir. Ef engin lausnarbeiðni berst forsetanum verður engin starfsstjórn. Ríkisstjórnin heldur þá bara áfram í óbreyttu formi.

Hún yrði þarmeð ekki háð þeim takmörkunum sem gilda um starfsstjórnir. Þær fela m.a. í sér ákveðna friðarskyldu þar sem ráðherrar sinna einungis verkum sem þarf til að halda ríkinu gangandi uns ný stjórn með þingmeirihluta tekur við. Þeim er ekki ætlað að taka neinar ákvarðanir sem valdið geta ágreiningi.

Ef VG gerir engan ágreining við áform Bjarna um að óska eftir þingrofi án þess að biðjast lausnar fyrir ríkisstjórn sína heldur hann því áfram sem forsætisráðherra gegnum kosningabaráttuna með öllu því forskoti sem þyngd embættisins veitir. Hann mun þá einsog allir aðrir ráðherrar Sjálfstæðisflokksins hafa fullt og óskorað vald í sínum málaflokkum. Vill Svandís það? Tæpast, því það er ekki í þágu hagsmuna VG.

Svo vill til að hún á völ á öðru. Svandís á nefnilega þann leik að draga VG formlega út úr ríkisstjórninni, sem um leið tapar meirihluta sínum á Alþingi. Ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar væri þarmeð fallin. Forseti Íslands verður þá að fara í viðræður við leiðtoga allra flokka og kanna hver þeim finnst best fallinn til að leiða starfsstjórn framyfir kosningarnar. Harla ólíklegt er að niðurstaðan verði sú að benda á Bjarna Benediktsson.

Geri hún það ekki verður það í annað skiptið…

Við mat á þessu hlýtur Svandís einnig að horfa til þess að ríkisstjórn Íslands er ekki fjölskipað stjórnvald. Hafi forsætisráðherra ekki beðist formlega lausnar með bréfi til forseta fyrir ráðuneyti sitt geta ráðherrar tekið allar ákvarðanir sem þeir vilja, svo fremi þær eru innan ramma laganna. Í þeim vígaham sem birtist í yfirlýsingum nær allra ráðherra Sjálfstæðisflokksins gagnvart VG í gær, má taka sem gefnu að þeir muni kosta kapps um að skerpa stöðu sína og ásýnd með ýmsum ákvörðunum sem ganga þvert á stefnu VG, t.d. í málefnum innflytjenda og orkumálum. Vill Svandís gefa Sjálfstæðisflokknum þannig skotleyfi á VG beint ofan í kosningar?

Eftir það sem á undan er gengið, og eftir þau svipugöng niðurlægingar sem Bjarni og ráðherrar Sjálfstæðisflokksins leiddu Svandísi í gegnum í atburðarrás gærdagsins, þá á Svandís því varla annan kost en draga VG formlega út úr ríkisstjórninni.

Geri hún það ekki verður það í annað skiptið, sem VG tryggir Bjarna í stól forsætisráðherra. Hvernig ætlar Svandís Svavarsdóttir að útskýra það fyrir þeim kjósendum á vinstri vængnum sem hún mun biðla til í nauðvörn næstu kosninga?

Önnur niðurstaða fæli í sér endanlega uppgjöf fyrir Sjálfstæðisflokknum. Hún yrði líklega grafskrift hennar sem formanns, og jafnvel VG sem flokks.“


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: