Sumir eru í vondum málum meðan aðrir hafa það bara fjandi gott
„Aðgerðir ríkisstjórnarinnar hafi ekki verið markvissar og frekar ratað þangað sem síður var þörf á aðgerðum.“
„Atvinnuleysi er 130% hærra (11% vs 4,8%) en í upphafi árs 2020. Hlutabréf hafa hækkað um 37,4% á sama tíma. Gengið er 8,8% veikara. Verðbólga er 4,75%, án húsnæðis er verðbólgan 5%. Vísitala leiguverðs hefur lækkað um 0,7%. Launavísitala hefur hækkað um 4% og vísitala kaupmáttar um 5,4%. Svarið við spurningunni um hver áhrifin hafa verið er því flókin. Kaupmáttur hefur almennt aukist en samt er 11% atvinnuleysi. Launavísitala hefur samt hækkað minna en kaupmáttur. Gengið hefur veikst meira en launavísitalan hefur hækkað,“ þetta segir meðal annars í langri grein Björns Leví Gunnarssonar, sem birt er í Mogga dagsins.
Björn fjallar um stöðu efnahagsmála og hvernig ríkisstjórninni hefur til tekist.
„Eina rökrétta niðurstaðan sem hægt er að lesa úr þessum tölum öllum er að sumir eru í vondum málum en aðrir hafa það bara fjandi gott. Svo gott að meðaltalið lítur betur út. Hvað þýðir það um aðgerðir ríkisstjórnarinnar? Ef það er satt sem forsætisráðherra segir að ríkisstjórnin sé búin að hella 7,5% af vergri landsframleiðslu í aðgerðir gegn efnahagsvanda kófsins þá hefur það ekki skilað sér í minna atvinnuleysi því það hefur farið vaxandi það sem af er faraldri (ekki brugðist við jafnóðum), rétt eins og verðmæti hlutabréfa. Tölurnar benda til þess að aðgerðir ríkisstjórnarinnar hafi ekki verið markvissar og frekar ratað þangað sem síður var þörf á aðgerðum.“
Björn Leví endar grein sína svona: „Hvort sem aðgerðir ríkisstjórnarinnar voru 2,5% eða 7,5% þá er staðan þessi: Mikið atvinnuleysi og verðbólga umfram launavísitölu. Það er raunveruleikinn sem Íslendingar búa við. Er það ásættanlegur árangur?“