„Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins greiða atkvæði gegn því að byggja fjölbýlishús á SÍF-reitnum (Keilugranda 1) þar sem þeir telja að nýta eigi svæðið í þágu íþrótta- og útivistarstarfsemi í Vesturbænum.“
Þetta bóka borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins.
Og hvers vegna?
„Grandahverfi er nú þegar með þéttbýlustu hverfum borgarinnar en viðurkennt er að mikill og vaxandi skortur er á rými fyrir íþróttastarfsemi í hverfinu og er mikilvægt að bæta úr því. Enn skal minnt á að útlit er fyrir mikla þéttingu byggðar í Vesturbænum á næstu árum sem gæti haft í för með sér að íbúum hverfisins fjölgi um a.m.k. 5.500 manns eða 33 prósent.“
Þau segja meirihlutann sýna af sér fyrirhyggjuleysi. Hvers vegna gera þeir það?
„Með því að leggja annars vegar mikla áherslu á fjölgun íbúa í Vesturbænum en neita hins vegar að horfast í augu við þá staðreynd að slík fjölgun kallar á umtalsverða uppbyggingu innviða, ekki síst í þágu íþrótta- og grunnskólastarfsemi. Ákjósanlegasti kosturinn við að stækka íþróttasvæði hverfisins er að nýta umrædda lóð að Keilugranda 1 í því skyni. Með þeirri ákvörðun meirihlutans að ráðstafa svæðinu undir þétta fjölbýlishúsabyggð er jafnframt komið í veg fyrir að hún nýtist í þágu íþrótta- og æskulýðsstarfsemi í Vesturbænum.“